Leita í fréttum mbl.is

Hvar liggur snobbið og hrokinn?

Mér finnst umræðan um þessa frétt afar neikvæð. Liggur umrætt snobb og hroki kannski frekar í kerfinu sjálfu heldur en í foreldrum sem eru að reyna að styðja börnin sín í mótlætinu og hjálpa þeim að takast á við höfnunartilfinninguna?

Að sjálfsögðu þurfa allir að læra að takast á við mótlæti en það er samt sem áður erfitt fyrir 15-16 ára unglinga að taka endurtekinni höfnun.

Ég vil ítreka það að ég tel þetta "elítu"- fyrirkomulag slæmt, skólasamfélagið verður einsleitara þar sem valið er inn eftir einsleitum hæfileikum. Fólk þarf ekki bara að læra að taka höfnun - það þarf líka að læra að lifa og starfa í fjölbreytilegu samfélagi með einstaklingum sem búa  yfir fjölbreytilegum hæfileikum - ekki bara hæfileikanum til að fá háar einkunnir í skólanum.

Það er margt annað mikilvægara í lífinu en háar einkunnir og skólarnir eiga að endurspegla það.

Mér finnst þessi umræða endurspegla ástandið í samfélaginu - við erum reið og hötum snobb og hroka sem er birtingarmynd þess sem hefur komið okkur sem þjóð á kaldan klaka - en það er ekki venjulegum foreldrum, sem eru að reyna að plástra sár barna sinna, að kenna.

Þessi umræða er orðin ansi persónuleg finnst mér og mig langar til að minna á þau fleygu orð að aðgát skal höfð í nærveru sálar.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Sonja B. Jónsdóttir
Sonja B. Jónsdóttir
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband