Leita í fréttum mbl.is

Bankinn gefur tóninn

Já, það voru svo sannarlega góðar fréttir sem vinnandi fólk í þessu landi fékk í gær, 1. maí, á alþjóðlegum baráttudegi verkalýðsins. 800 milljónir í starfslokasamning fyrir einn félagann í hópi launþega landsins. Þetta hlýtur að gefa tóninn fyrir næstu kjarasamninga!

 


mbl.is Glitnir kaupir bréf af Bjarna á yfirverði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Já, það er gott að vita til þess að Glitnir fer vel með peningana sem hann þénar af almúganum :)

Svavar Friðriksson (IP-tala skráð) 2.5.2007 kl. 11:05

2 Smámynd: Guðjón Sigþór Jensson

Bjarni fær meira fyrir sinn snúð eða hátt í 7 milljarða fyrir bréfin sem hann átti í Glitni auk þess að halda launum og hlunnindum í heilt ár.

Ef venjulegur launþegi hafi 200 þús á mánuði þá gerið það 2.4 milljónir á ári og ef starfsævin eru 40 ár þá er rétt innan við 100 milljónir að ræða en þá á eftir að reikna skatta. Það þarf því ævitekjur um 70 meðal Jóna að hala inn þessum fjárhæðum sem bankastjórinn nær inn á einu bretti.

Bjarni þarf einungis að greiða 10% fjármagnstekjur og hefur því margfalt upp úr krafsinu en venjulegur einstaklingur sem þarf að greiða um 37,5% í staðgreiðslu.

Mér datt þetta svona í hug!

Mosi alias

Guðjón Sigþór Jensson, 2.5.2007 kl. 12:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Sonja B. Jónsdóttir
Sonja B. Jónsdóttir
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband