Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, júní 2009

Hvar liggur snobbið og hrokinn?

Mér finnst umræðan um þessa frétt afar neikvæð. Liggur umrætt snobb og hroki kannski frekar í kerfinu sjálfu heldur en í foreldrum sem eru að reyna að styðja börnin sín í mótlætinu og hjálpa þeim að takast á við höfnunartilfinninguna?

Að sjálfsögðu þurfa allir að læra að takast á við mótlæti en það er samt sem áður erfitt fyrir 15-16 ára unglinga að taka endurtekinni höfnun.

Ég vil ítreka það að ég tel þetta "elítu"- fyrirkomulag slæmt, skólasamfélagið verður einsleitara þar sem valið er inn eftir einsleitum hæfileikum. Fólk þarf ekki bara að læra að taka höfnun - það þarf líka að læra að lifa og starfa í fjölbreytilegu samfélagi með einstaklingum sem búa  yfir fjölbreytilegum hæfileikum - ekki bara hæfileikanum til að fá háar einkunnir í skólanum.

Það er margt annað mikilvægara í lífinu en háar einkunnir og skólarnir eiga að endurspegla það.

Mér finnst þessi umræða endurspegla ástandið í samfélaginu - við erum reið og hötum snobb og hroka sem er birtingarmynd þess sem hefur komið okkur sem þjóð á kaldan klaka - en það er ekki venjulegum foreldrum, sem eru að reyna að plástra sár barna sinna, að kenna.

Þessi umræða er orðin ansi persónuleg finnst mér og mig langar til að minna á þau fleygu orð að aðgát skal höfð í nærveru sálar.


Aftur til hverfaskólanna

Er ekki kominn tími til að hverfa aftur til gamla kerfisins þar sem krakkarnir fóru bara ósköp einfaldlega í þann skóla sem var næstur heimilum þeirra?

Mér hugnast ekki þessi elítu-hugsun og held að það sé betra að skólarnir séu bara þversnið af samfélaginu - endurspegli þann veruleika sem við búum öll í og unglingarnir eiga eftir að lifa og starfa í.

Fyrir nú utan mengunina sem hlýst af öllum akstrinum langar leiðir í skóla og meðfylgjandi kostnað. 

Samræmdu prófin voru slæm en þetta virðist enn verra.

Ég skil vel áhyggjur móðurinnar af tilfinningum dóttur sinnar, svona síendurtekin höfnun tekur á sálartetrið og við erum hér að tala um óharðnaða unglinga.

 

 

 


mbl.is Foreldrar bálreiðir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hærri skatta frekar en niðurskurð

Ef Tryggva finnst of skammt gengið hefði hann getað stungið upp á hærri hátekjuskatti og einnig hefði mátt hafa mörkin lægri - byrja t.d. hátekjuskattinn við fimmhundruð þúsundin. Það hefði ekki verið óeðlilegt, hvorki í ljósi aðstæðna né miðað við önnur lönd.

Það er hins vegar lausn sem sjálfstæðismenn sjá ekki - þeir vilja frekar skera niður heilbrigðiskerfið og skólana.


mbl.is Vildu meiri niðurskurð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Loksins eitthvað jákvætt í fréttum

Markmiðin með þessum nýju verðlaunum eru mikilvæg. Það er mikilvægt að ýta undir skapandi hugsun og samþætta listgreinar og aðrar námsgreinar. Hefði líka mátt taka fram að efla ætti gagnrýna hugsun en hún fylgir vonandi í kjölfarið.


mbl.is Ný verðlaun kennd við Erró
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað varð um gagnsæið???

Var ekki talað um það fyrir kosningar að mikilvægt væri að auka gagnsæi og að allt ætti að vera uppi á borðum þannig að allir gætu kynnt sér málin og tekið afstöðu til þeirra?

Ég man ekki betur þó að einhverjir stjórnmálamenn virðist vera búnir að gleyma því.

Hvað eru ráðherrar og samninganefndin eiginlega að hugsa?

Hvers konar bull er þetta?

Þingmenn hljóta að hafna því sem þeir fá ekki að kynna sér, ég trúi ekki öðru.


mbl.is Ekki ríkisábyrgð á leynisamning
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Höfundur

Sonja B. Jónsdóttir
Sonja B. Jónsdóttir
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband